bank bank, who´s there???
Bloggarar
10.09.2006 23:50:39 / arnason

jæja þá, nokkrum mánuðum, dögum og klukkutímum frá því að ég reis til lífs

Hvað á þetta að þýða hjá manni. Ég er allavegana búin að draga fram eitthvert eldgamalt lykilorð og notendanafn fram og ætla að gera hér heiðarlega tilraun til að segja eitthvað skemmtilegt af sjálfum mér og viðhalda þeirri venju að gera það reglubundið.

Allavegana, þá er það að frétta af gamla að hann er að rotna úr leiðindum á þessu sunnudagskveldi, maður náði náttúrulega ekki að gera neitt af því sem maður ætlaði sér um helgina. Svona er þetta bara alltaf, maður ætlar að læra og guð veit hvað en svo rankar maður við sér seint á sunnudögum og uppgötvar að helgin er búin og en biða öll verkefnin, og já þá, á þeirri stundu er maður fattar það, já, þá kveikir maður bara á imbanum og gefur skít í þetta.

Annars erum við félagar búnir að vera með Reginu frænku í heimsókn hér um helgina, og hún fékk að sjálfsögðu eins og aðrir gestir sem hingað koma, helgarpassa í Jomfrú Anne Gade. Bara helvíti gaman af því skal ég segja ykkur. en allavegana, over and out, kaptein Árnason


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 23:15:42 / arnason

Risinn frá dauðum....

Heyrst hafa fréttir af því að Óttar Danakóngur drottnari bloggheima sé dauður, þetta er alls ekki satt. Hann lagði sig bara. En nú er ég kominn aftur á bloggið. Það hefur nú ýmislegt drifið á daga mína síðan síðast, við erum búin að kaupa allar jólagjafir og þær fóru meira að segja af stað til íslands í dag með gámnum hennar Guðnýjar vinkonu. Greyið Guðný er semsagt að flytja til ísl!!! það er nú frekar mikið leiðinlegt samt:( en svona er þetta, maður verður bara að líta á björtu hliðarnar, við gátum sett pakkana með gámnum og hittum hana aftur á ísl um jólin. Hrannar Frændi er kominn með íbúð hér í sömu götu og ég, ég held að danirnir haldi að ég sé bara eins og hitt muslimaliðið sem flytur hingað, fyrst kemur 1, svo kemur öll ættin. Mikið skil ég múslimana, voða fínt að hafa einhverja sem maður þekkir og talar sama málið í kringum sig. Annars er það náttúrulega helst í fréttum að von er á kappanum upp á klaka þann 20 des, heyrst hefur af því að þeir séu meira að segja búnir að finna fram rauða dregilinn sem notaður er við þau hátíðlegu tækifæri eins og þegar ég og aðrir þjóðhöfðingjar stígum á íslenska grundu. En jæja ég hef ekki tíma fyrir meira í bili, gúd bæjj.....

» 10 hafa sagt sína skoðun

20.11.2005 18:11:54 / arnason

Sæl verið þið börnin mín. Langt síðan síðast.....

Hvernig er þetta eiginlega, er letin að drepa mann eða hvað??? Ég skil þetta ekki, ég er bara ekki búin að vera að nenna að skrifa hér inn undanfarið, enda mikið búið að vera að gera. En svona til að gera langa sögu stutta, þá get ég nú sagt það að sálartónleikarnir  sem og kaumannahafnar ferðin voru frábærir, mikið drukkið og mikið gaman, ég man samt litið eftir þessu öllu saman. Eftir heimkomunna hefur verið brjálað að gera, ég var að skila miniverkefni í síðustu viku og átti bókstaflega heima í grúbbuherberginu mínu síðustu vikuna fyrir skil. En hvernig sem því líður, þá er eg búin að skila þessu helv.. verkefni og er loksins byrjaður á aðalverkefninu sem ég á að skila 20 des!!

Annað í fréttum er það að hann Hrannar Már stór frændi minn hringdi í mig á föstudaginn fyrir viku síðan, og kvaðst vera staddur 20 km frá Álaborg á leið í helgarheimsókn til mín frá Swiss. Þegar helgin var á enda leist honum ekki verr á Álaborgina en svo að hann ætlaði að athuga hvort að það væri einhver séns að fá vinnu hér. Það varð því svo úr að síðastliðin mánudagsmorgunn sá hann fram hjá sér keyra toyotu hilux sem á stóð nafnið á einhverju múrarafyrirtæki og símanúmer þar, hann hringdi síðan í þetta númer og viti menn, hann er að fara að vinna þar á morgunn. Já krakkar mínir þetta gerist hratt í borg álarinnar. En jæja þá er kominn tími á að fara að læra á þessu fagra sunnudagskveldi...


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 09:37:56 / arnason

Íslendingar...........LANG FLOTTASTIR

Rakst á þessa grein í blaðinu, þetta er lýsandi dæmi þess hversu flottir íslendingar eru... smellið á linkinn

http://www.bt.dk/nyheder/artikel:aid=399876/

P:S það koma fregnir af sálarför hér síðar í dag


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.11.2005 16:38:42 / arnason

á leið til Köben....

hæ og hó og allt það. Það er víst kominn tími á smá blog. Vikan er búin að vera alveg geðveik, allavegana skólalega séð. Það er farið að nálgast skilafrest á öðru af 2 verkefnum sem ég á að skila og því tími til kominn að byrja að gera eitthvað. Annars er ég kominn í helgarfrí, já, ég er nefnilega að fara til köben í fyrramálið á sálartonleika sem eru á laugardaginn:D og fer því ekki í skólan. :lol: En ég tek bara kennslubækurnar með og verð duglegur að læra á gistiheimilinu í staðin;) hvernig er þetta annars eruð þið nokkuð að gleyma að skrifa í gestabók??? En jæja, ég er farinn að pakka, skrifa seinna um Sálarferðina

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2005 21:28:44 / arnason

Fréttir frettir....

Helgin hefur verið með afbrigðum viðburðarlaus í Borg Ála.  Á föstudagskvöldið var farið í heimsókn til Guðnýjar og sátu þær vinkonur Elva og Guðný í góðu samlæti með Bakkus, en ég aftur á móti var sallarólegur og sötraði pepsí, enda strákurinn sannkallaður bindindismaður. Laugardagurinn og sunnudagurinn fóru svo í það að læra og glápa á sjónvarp. Í framtíðar fréttum má nefna það að næstkomandi föstudag verður riðið af stað í átt til borgar kaupmanna, þar sem ætlunin er að fara á tónleika Sálarinnar hans Jóns minns. Riðið verður í fylgd Arnars ljónshuga og Rannveigar konu hans. Búið er að lofa okkur húsaskjóli á Gistiheimili laville og eftirvæntinginn því orðin mikill hjá Arnari Ljónhuga og Óttari Vembli að þræða upp Ölkelduhús og knæpur þeirrar borgar er Kaupmannahöfn er nefnd. Hvernig er þetta eru einhverjir aðrir að fara þangað um helgina??


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 09:38:54 / arnason

Úr orðabók Serðis Stormskers að mig minnir allavegana....

Ég rakst á þetta á leið minni um netið, ótrúlegt hugmyndaflug sem menn hafa hehe...

Að bera fé: Afklæða kind  

Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap

Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur
Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur

Fégirnd: Afbrigðileg kynhneygð (Að girnast sauðfé)

Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket

Féhirðir: Smali

Félag: Lag sem samið er um sauðfé

Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé

Félegur: Eins og sauður

Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki

Fjárdráttur: Samræði við kind

Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé

Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé

Fjárlög: Mörg lög sem samin eru um sauðfé

Fjármagn: Þegar margar ær koma saman

Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm -Tóndæmi

Fjármálaráðherra: Yfirsmali

Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda

Fjárnám: Skóli fyrir kindur

Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beytt fyrir plóg

Fjársöfnun: Smalamennska

Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin

Fjárvarsla: Það að geyma kindur

Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum

Fjáröflun: Smalamennska

Fundið fé: Kindur sem búið er að smala

Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli

Grímsá: Kind í eigu Gríms

Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér

Hlutafé: Súpukjöt

Langá: Einstaklega löng kind

Lausafé: Kindur sem eru lausar á afréttinum

Norðurá: Kind að norðan

Opnibert fé: Fé í eigu ríkisins

Sauðburður: Þegar handbært fé er borið að á milli staða

Sparifé: Kindur sem ekki eru notaðar hversdags

Stofnfé: Fyrstu kindurnar sem maður eignast

Tryggingafé: Öruggt sauðfé

Veltufé: Afvelta kindur

Þjórfé: Drykkfelldar ær

Þverá: Þrjósk kind


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 09:10:15 / arnason

og sagan heldur áfram...

Jæja þá góðir hálsar, kominn tími á að skrifa fréttirnar. Við erum að fara til København á Sálartónleika þann 5 nóv8). Ekki amalegt það,:haha: annars sit ég núna í  stærðfræðitíma og er að blogga, ekki gott það;) svo er það líka í fréttum að við erum kominn í matarklúbb og sénsinn minn á því að sigra fitukeppinn sem utan á mér hangir snar minkaði fyrir vikið:( en ég er nú samt að fara að kikja á júdó æfingu í dag. Ég hef aldrei farið í júdó og það á að draga mig á æfingu með fólki sem kann reglurnar, kann að meiða mig!!!!8| þetta er nú ljóta ruglið, en jæja eg nenni ekki meira:!: skrifa síðar um útkomu júdó æfingarinnar:| kv júdókappinn í dk


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 02:03:15 / arnason

Hæ hó

jæja þá, þá er kominn annar dagur og viti menn, ég er orðin drukkinn, á mánudegi og á að mæta í skóla á morgunn!! En hvað um það, ég er búin að hringja í þessar sultur sem ég er í grúbbu með og enginn þeirra virðist hvort eð er ætla að mæta! þannig að það sér það hvort sem er enginn þótt maður se timbó. Málið er semsagt þannig með vexti að við Elva, Emmi bróðir og Steinunn ákváðum að spila í kvöld, þvi miður var ekki til nægur bjór og þar með nauðsynlegt að fá sér vel af visky, rósavíni og irish coffe með bjórnum;) ég held að ég mæti ekki kl 8, ég dreg það fram til 12 hehe8) annars voru úrslit spilana sú að ég vann aldrei, og það má segja að Steinunn hafi verið spilakóngur kvöldsins eftir sigur í bæði risk og svo kana... en eins og máltækið segir "heppinn í ástum, óheppinn í spilum, haha.....ég held að ég sé farin að sofa bæjó spæjó...


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2005 15:48:42 / arnason

hmmm....

Jæja þá, vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að láta af vera og opna þessa bloggsíðu. Hér er ætluninn að skrifa inn einhverjar fréttir  allavegana annað slagið. En við skulum nú sja til hversu virkt þetta verður;) Af mer er það annars að frétta að ég sit half timbraður og er að vafra um netið á þessum líka dásamlega sunnudegi. Sem betur fer þá er ég í frii á morgunn og get því bara helt í mig aftur núna og þar með frestað timburmönnum fram á morgunndaginn. en jæja, nenni ekki meira núna ...

» 9 hafa sagt sína skoðun